Í ár eru liðin 40 ár frá fyrstu tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur, en þeir voru haldnir á Kjarvalsstöðum í ágúst árið 1974. Af þessu tilefni ætlar sveitin að endurtaka leikinn og flytja sömu efnisskrá á sama stað og fyrir 40 árum. Á tónleikunum verða leikin verk eftir Corelli, Bach, Martinu og Pál Pampichler Pálsson.
Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1974 af Rut Ingólfsdóttur ásamt 12 hljóðfæraleikurum, sem flestir voru nýkomnir heim frá námi erlendis og störfuðu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík. Markmiðið með stofnun sveitarinnar var að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist, allt frá barokktímanum til nútímans og gefa um leið hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við áhugaverð verkefni. Óhætt er að fullyrða Kammersveitin hafi tekist ætlunarverk sitt því hún hefur átt fastan sess í tónlistarlífi höfuðborgarinnar síðan.
Tónleikarnir hefjast kl. 17.15. Aðgangseyrir er 2.500 kr.