Börn af leikskólanumTjarnarborg og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnuðu jólaverkstæði barnanna í Tjarnarsal Ráðhússins í dag.
Tjarnarsalurinn hefur tekið stakkaskiptum og þar geta börn upplifað sannkallað jólaævintýri en Tjarnarsalnum hefur nú verið breytt í jólaverkstæði. Börnin í Tjarnarborg skemmtu sér konunglega þegar jólaverkstæðið var opnað, þau skemmtu sér í jólahúsinu og skriðu svo út þar sem borgarstjóri og Hurðaskellir tóku á móti þeim. Börnin sungu hástöfum fyrir gestina; Það á að gefa börnum brauð og síðan var þeim boðið upp á kakó og piparkökur.
Á aðventunni geta börn sem leggja leið sína í ráðhúsið fengið efni til að föndra sitt eigið jólaskraut, tekið það með sér heim eða hengt það upp á vegg í salnum. Í ráðhúsinu verður sérlegur aðstoðarmaður jólaverkstæðisins sem mun verða börnum til aðstoðar. Allir eru velkomnir á jólaverkstæðið því þar kemst maður í sannkallað jólaskap.
Tekið verður á móti börnum frá leikskólum og frístundaheimilum í skipulögðum heimsóknum og er þeim boðið upp á kakó og piparkökur.
Hönnuður jólaverkstæðisins er Rebekka A. Ingimundardóttir
Jólaverkstæðið verður opið, á virkum dögum frá 8.00 til19.00 og um helgar frá 12.00 til 18.00, til 6. janúar nk.