Á endurvinnslustöðvum Sorpu er tekið á móti jólatrjám frá heimilum í Reykjavík og einnig bjóða ýmis félagasamtök íbúum að losa þá við trén gegn gjaldi.
Íbúar geta einnig losað sig við flugeldarusl til endurvinnslustöðva Sorpu. Íbúar eru hvattir til að hreinsa upp leifar af flugeldum, tertukössum og öðrum skoteldum í sínu nánasta umhverfi.
Íþróttafélög sem sækja jólatré eru t.d. Leiknir í Breiðholti sem sækir trén á morgun, þriðjudag fyrir 1.000 kr. Þeir sem vilja þiggja þjónustuna geta hringt eða sent SMS með heimilisfangi í síma 690-0204. Strákarnir úr 4. flokki Leiknis verða á ferðinni eftir kl 17.