Jazzhátíð Reykjavíkur var sett með pompi og prakt í gær. Hún er nú haldin í 25. sinn og er með veglegra móti í ár til að fagna tímamótunum. Fjölmargir íslenskir og erlendir tónlistamenn taka þátt í hátíðinni og er af nógu að taka fyrir jazzgeggjara.
Jazzhátíð hófst með skrúðgöngu niður Laugaveginn að Hörpu þar sem setningarathöfnin fór formlega fram. Fjöldi fólks tók þátt í göngunni og í broddi fylkingar gengu tónlistarmenn sem spiluðu dynjandi jazztónlist. Þegar komið var í Hörpu setti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hátíðina, og sagði hana vera fyrir löngu orðna órjúfanlegan hluta af reykvísku menningarlífi og lækkandi sól. Hátíðin auðgi menningar- og mannlíf borgarinnar og þakkaði hann Félagí Íslenkra hljómlistarmanna fyrir dugnað og elju við skipulagninguna.
Að því loknu ómaði jazzinn í Hörpunni og mun gera næstu vikuna.
Sýndar verða ljósmyndir í Hörpunni eftir pólska listamanninn Slawek Przerwa á meðan Jazzhátíð stendur. Sýningin er gott dæmi um hvernig hægt er að þróa tengsl í tónlistar- og menningarlífi þjóða á fjölbreyttan hátt.
Jazzhátíð Reykjavíkur leggst svo á sveif með konum í jazzmúsík í ár. Að þessu sinni eru það listamennirnir Nicole Johänntgen saxófónleikari frá Þýskalandi, kontrabassaleikarinn Ellen Andrea Wang frá Noregi og breski trommuleikarinn Daisy Palmer en þær taka höndum saman við reykvískar jazzsystur á tónleikum á laugardagskvöldið. Á sunnudaginn kemur verður svo boðið upp á vinnusmiðju kvenna í jazzi.
Ekki missa af Jazzhátíð Reykjavíkur sjá nánari dagskrá:
www.reykjavikjazz.is