Jafnrétti, mannréttindi, forréttindi, misrétti

Mannlíf Mannréttindi

""

Landsfundur jafnréttisnefnda í ár er haldinn í Reykjavík. Landsfundurinn er kjörinn vettvangur fyrir fólk sem vinnur að jafnréttismálum til að koma saman og ræða málin, fræðast, fá góðar hugmyndir og kynna sér hvað er efst á baugi í öðrum sveitarfélögum. 

Landsfundur jafnréttisnefnda haldinn í Reykjavík 18. - 19. september 2014

Dagskrá fimmtudaginn 18. september í Iðnó. Dagskráin er opin fyrir alla.

13:00 - 13:05. Setning. Líf Magneudóttir formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar.

13:05 - 13:20. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra ávarpar gesti.

13:20 - 13:50. Jafnrétti fyrir alla, ekki bara konur og „kalla“. Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar.

13:50 - 15:20. Ef þú býrð við forréttindi er þá ekki einhver beittur misrétti? Vinnustofa. Ef enginn hefði forréttindi væri heldur ekkert misrétti. Jafnréttisstarf snýst oft á tíðum um að skoða birtingarmyndir misréttisins en í þessari vinnustofu verður hin hliðin á málinu, forréttindi, tekin til gagngerrar skoðunar. Auður Magndís Auðardóttir, verkefnastjóri jafnréttis á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og Embla Guðrúnar Ágústsdóttir, verkefnisstýra hjá Tabú.

15:20 - 15:35. Kaffi og kruðerí.

15:35 - 16:05. Ósýnileiki kvenna í afbrotum – hvers vegna? Helgi Gunnlaugsson, prófessor.

16:05 - 17:20. Hvernig getur þú breytt gangi sögunnar? Reconesse Database er verkefni sem byggir á því að rétta hlut kvenna í sögubókum sem og miðlum nútímans. Þær Anna Gyða Sigurgísladóttir og Berglind Sunna Stefánsdóttir, tvær af upphafskonum verkefnisins, munu leiða stutta vinnusmiðju þar sem augu þátttakenda verða opnuð fyrir áhrifamætti frásagna í baráttunni fyrir auknu jafnrétti í heiminum.