Jaðarlist

Velferð Menning og listir

""

Jaðarlist er sýning utangarðsfólks í Reykjavík sem haldin er í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina.

Það var hátíðarstemning við opnun sýningarinnar en listamennirnir eiga það sameiginlegt að vera eða hafa verið í hópi utangarðsfólks.

Verkin eru af ýmsum toga og listrænir hæfileikar miklir meðal þeirra sem þarna sýna. Sýningin stendur yfir í dag til klukkan 18.00 og á morgun, sunnudag frá 10.00 - 18.00. Allir velkomnir.

Á facebook síðu Borgarinnar er hægt að skoða myndband um jaðarlist.