Innritun í grunnskóla og frístundaheimili hefst 10. febrúar

Skóli og frístund

""

Innritun barna sem fædd eru árið 2008 og hefja skólagöngu haustið 2014 fer fram dagana 10. - 16. febrúar.  Innritun fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík.

Opnað verður fyrir skráningar kl. 08.00 frá  og með mánudeginum 10. febrúar. Einnig er hægt að innrita börn á frístundaheimili á sama tíma í gegnum Rafræna Reykjavík, svo og börn og unglinga sem þurfa að skipta um skóla næsta haust.

Öll börn eru skólaskyld á því ári sem þau verða 6 ára. Foreldrar barna fædd árið 2008 hafa fengið bréf  með upplýsingum um innritun í grunnskólanna.