Salathúsið hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla tvær tegundir af skinkusalati vegna þess að vörurnar innihalda ómerktan ofnæmis- og óþolsvald: mjólkuafurð – mjólkursykur.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Salathúsið.
Vöruheiti: Skinkusalat.
Strikanúmer: 5690587553339
Best fyrir: Allir pökkunardagar (PD) fyrir 01.09.2014
Framleiðandi: Salathúsið, Sundagörðum 10, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir um land allt, m.a. verslanir Krónunnar, verslanir Nóatúns, verslanir Kjarvals, verslanir Hagkaupa, verslanir 10-11.
Vörumerki: Eðalsalöt.
Vöruheiti: Skinkusalat.
Strikanúmer: 5690584030057
Best fyrir: Allir pökkunardagar (PD) fyrir 01.09.2014
Framleiðandi: Salathúsið, Sundagörðum 10, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir um land allt, m.a. verslanir Krónunnar, verslanir Nóatúns, verslanir Kjarvals, verslanir Hagkaupa, verslanir 10-11.
Tekið skal fram að vörurnar eru skaðlausar þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir mjólkurafurðum. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.
Þeir neytendur sem eiga umræddar vörur og eru viðkvæmir fyrir mjólkurafurðum, eru beðnir um að hafa samband við Salathúsið í síma 412 1300.