Innköllun á Lima maískökum

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Arka heilsuvörur ehf. heildverslun hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla Lima maískökur vegna þess að sveppaeitur (mycotoxin) greindist í þeim yfir mörkum.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Lima.

Vöruheiti:  Corn cakes natural.

Nettóþyngd:  120 g.

Best fyrir:  03.02.2015.

Dreifing:  Fjarðarkaup, verslanir Hagkaupa, Hlíðarkaup, Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík, verslanir Iceland, verslanir Kaupáss (Krónan, Nóatún, Kjarval), Melabúðin, verslanir Samkaupa (Nettó, Samkaup Strax, Samkaup Úrval), Sunnubúðin, verslanir Víðis.

Brugðist hefur verið við og þessi vara fjarlægð úr hillum verslana en þeir neytendur sem eiga þessa vöru heima hjá sér eru vinsamlegast beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila vörunni í þeirri verslun þar sem hún var keypt og fá hana bætta.