Kexverksmiðjan Frón hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla matarkex.
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Innköllun á Frón matarkexi vegna vanmerkts ofnæmis- og óþolsvalds (súlfít).
Kexverksmiðjan Frón hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla matarkex vegna þess að varan inniheldur aukefnið E 223 en ekki kemur skýrt fram í innihaldslýsingu að um er að ræða ofnæmis- og óþolsvaldinn natríummetabísúlfít.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Frón.
Vöruheiti: Matarkex.
Best fyrir: Allar Best fyrir dagsetningar.
Framleiðandi: Kexverksmiðjan Frón, Tunguhálsi 6, 110 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir um land allt.
Brennisteinsdíoxíð og súlfít (súlfít), gefið upp sem SO2, í styrk sem er yfir 10 mg/kg eða 10 mg/l er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.
Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir súlfíti. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir súlfíti eru beðnir um að farga henni eða skila til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Frón, www.fronkex.is.