Innköllun á bökuðum baunum, merktar Crosse & Blackwell

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

Efni:  Innköllun á bökuðum baunum vegna galla við húðun á innra byrði umbúða.

Ísland - Verslun hf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla bakaðar baunir, merktar Crosse & Blackwell, vegna galla við húðun á innra byrði umbúða. Varan var tekin úr sölu frá og með 25. mars  2014.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Crosse & Blackwell.

Vöruheiti:  Baked beans in tomato sauce.

Best fyrir:  Allar Best fyrir dagsetningar.

Framleiðandi:  The Premier Foods Group.

Framleiðsluland:  Bretland.

Dreifing:  Verslun Iceland í Engihjalla 8 og fyrrum verslun Iceland á Fiskislóð 3.



Viðskiptavinum er bent á að hægt er að skila vörunni í verslun Iceland í Engihjalla 8.