Íbúafundir um uppstillingu hugmynda til rafrænna hverfakosninga verða haldnir í hverfum Reykjavíkur á næstunni. Fyrsti fundurinn er á morgun en þá verður fundað um hugmyndir í Árbæ.
Dagana 11.-18. mars verða haldnar rafrænar hverfakosningar um verkefni í Betri hverfum. Áður en að því kemur er boðað til kynningarfunda með íbúum til að fara yfir þær hugmyndir sem bárust inn á vefinn Betri hverfi í nóvember. Uppstillingu hugmynda er nú óðum að ljúka í hverfunum en fagteymi Reykjavíkurborgar og hverfisráðin sjá um þá vinnu. Farið verður yfir allar hugmyndir sem bárust í hverfunum á fundinum, bæði þær sem stillt verður upp í kosningunum og þær sem ekki voru valdar. Á fundunum verður hægt að spyrja spurninga um ferlið og koma með athugasemdir. Þá eru hugmyndir um framtíð og þróun verkefnisins Betri hverfi sérstaklega velkomnar. Allar hugmyndirnar sem kosið verður um verða rækilega kynntar á vef Reykjavíkurborgar og víðar áður en kosningarnar hefjast.
Árbær
miðvikudaginn 19. febrúar kl. 17 til 18 í Frístundamiðstöðinni Árseli, Rofabæ 30
Grafarholt og Úlfarsárdalur
miðvikudaginn 19. febrúar kl. 18 til 19 í Frístundamiðstöðinni Árseli, Rofabæ 30
Breiðholt
fimmtudaginn 20. febrúar kl. 17 til 18 í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðubergi 3-5
Grafarvogur
mánudaginn 24. febrúar kl. 17 til 18 í Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness – Miðgarði, Gylfaflöt 5
Laugardalur
þriðjudaginn 25. febrúar kl. 17 til 18 í Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða, Síðumúla 39
Háaleiti og Bústaðir
þriðjudaginn 25. febrúar kl. 18 til 19 í Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða, Síðumúla 39
Kjalarnes
miðvikudaginn 26. febrúar kl. 17 til 18 í Félagsheimilinu Fólkvangi
Miðborg
mánudaginn 3. mars kl. 17 til 18 í Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21
Hlíðar
mánudaginn 3. mars kl. 18 til 19 Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21
Vesturbær
þriðjudaginn 4. mars kl. 17 til 18 í Neskirkju