Íbúasamtök Grafarholts og þjónustumiðstöð Grafarholts standa að Hátíðinni í Holtinu heima sem verður haldin í Grafarholti laugardaginn 16. ágúst. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá frá morgni til kvölds sem lýkur með brekkusöng í Leirdalnum undir stjórn Ingós veðurguðs.

Þetta er í þriðja skipti sem hátíðin er haldin og hefur hún aldrei verið veglegri.
10.00 - 12.00 - Einn, tveir Grafarholt - út að hreyfa sig!
Skokkhópur Fram og Grafarholts verður með skokk og göngu þar sem lagt er frá Leirdalnum í stuttar ferðir. Skipulagðar hjólaferðir verða farnar á sama tíma í fallegu umhverfi. Á sama tíma verður boðið upp á jóga í hinum rómaða Paradísardal þar sem allir eru velkomnir.
14.00-17.00 - Útimarkaður og skemmtun í Leirdal
Glæsilegur útimarkaður í Leirdal þar sem íbúar bjóða til sölu alls kyns varning úr geymslum og görðum. Boðið verður upp á hestaferðir fyrir þau yngstu, Fisfélag Reykjavíkur flýgur yfir svæðið og dreifir sælgæti. Leiktæki, hoppukastalar, tívolítæki, boltablaðra og þrautabrautir.
17. -19.45 – Götugrill
Íbúar í Grafarholti eru hvattir til að grilla saman í götum hverfisins áður en haldið er á kvöldskemmtun í Leirdalnum kl. 19.45.
19.45 – 21.30 – Glæsileg kvöldvaka
Geir Ólafs kveikir í mannskapnum með líflegri sviðsframkomu og Einar töframaður kemur og galdrar alla upp úr skónum. Ingó veðurguð heldur svo uppi fjörinu með brekkusöng. Kynnir er hinn landsþekkti útvarps-og sjónvarpsmaður Svali.