Hvernig Hlíðar viljum við?

Betri hverfi

""

Hvernig Hlíðar viljum við er yfirskrift fundar hverfisráðs Hlíðanna fimmtudaginn 6. nóvember næstkomandi frá kl.17 - 18:30 í Félagsmiðstöðinni Bólstaðahlíð 43.

Hvað er gott við hverfið, hverju vilt þú breyta og hvað viltu bæta? Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur hefur fundinn með áhugaverðu erindi um sögu Hlíðanna.

Markmið fundarins er að koma á samtali á milli íbúa og Hverfisráðs Hlíða og fá upplýsingar frá íbúum um þær áherslur sem íbúar vilja sjá í hverfinu. Hverfisráð mun nýta sér niðurstöður fundarins

við stefnumörkun og verkefnaval næstu 4 árin.  Fjölmennum og tökum þátt í opinni umræðu um hverfið okkar.

Auglýsing um fundinn.