Hverfakosningar í Reykjavík hefjast þriðjudaginn 11. mars

Betri hverfi

""

Rafrænar hverfakosningar um ný framkvæmdaverkefni í hverfum Reykjavíkur hefjast á miðnætti þriðjudaginn 11. mars. Opið verður fyrir atkvæðagreiðslu til miðnættis 18. mars.

Þetta er í þriðja sinn sem íbúum í Reykjavík gefst kostur á að kjósa um verkefni í hverfunum sínum í rafrænum kosningum með dulkóðuðum auðkennum. Kosningarnar eru með sama sniði og síðustu tvö ár. Farið er á vefslóðina http://www.kjosa.betrireykjavik.is.

Í kosningunum núna er notast við nýja íslykilinn til auðkenningar eða rafræn skilríki. Sjá nánar um Íslykil hér: http://www.island.is/islykill.

Kosningarétt hafa allir sem voru orðnir 16 ára um síðustu áramót og eru niðurstöðurnar bindandi. Á síðustu tveimur árum hafa íbúar í Reykjavík kosið yfir 200 verkefni til framkvæmda í hverfum borgarinnar, sem Reykjavíkurborg hefur framkvæmt eða eru á undirbúningsstigi. Hefur Reykjavíkurborg varið 600 milljónum til þessara verkefna.

Í ár verður 300 milljónum varið til nýrra verkefna í hverfunum sem íbúar forgangsraða í kosningunum. Auglýst var eftir hugmyndum frá íbúum í nóvember á síðasta ári og bárust yfir 400 hugmyndir sem hverfisráð og fagteymi á vegum borgarinnar fóru yfir.

Skoða má allar hugmyndirnar hér: http://www.reykjavik.is/kjosum-betri-hverfi-2014.

Reykjavíkurborg hvetur alla sem hafa kosningarétt að nýta sér atkvæðisrétt sinn og kynna sér verkefnin í sínum hverfum. Virkjum íbúalýðræðið!

Verkefni Betri hverfa sem þegar hafa komið til framkvæmda - skýrsla (pdf).