Hver á borgina?

Stjórnsýsla Umhverfi

""

Hver á borgina? Borgin, heimkynni okkar er fundarröð sem umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir með Hjálmari Sveinssyni, formanni umhverfis- og skipulagsráðs um þróun og mótun borgarinnar. Fyrsti fundurinn hefst klukkan 20.00 á Kjarvalsstöðum á Klambratúni, þriðjudaginn 14. október. Kaffihúsið verður opið og eru allir velkomnir.

Yfirskrift fundaraðarinnar er Borgin - heimkynni okkar.  Ætlunin er að skapa samtal milli Hjálmars og áhugaverðra viðmælenda og borgarbúa um skipulagsmál í víðu samhengi. Leitað verður eftir hressilegri umræðu þar sem ólík sjónarmið og reynsluheimar mætast á  málefnalegum grunni.

Hver á borgina? er spurningin sem verður til umræðu á fyrsta fundi en hún er einkar mikilvæg í ljósi nýsamþykkts aðalskipulags Reykjavíkur. Hversu langt er hægt að ganga í breytingum á borgarskipulagi án þess að ganga á rétt íbúa og annarra hagsmunaaðila? Eru allir jafn réttháir í göturýminu óháð ferðamáta? Hefur strætó með 80 farþegum rétt á jafn miklu borgarrými og 80 einkabílar? Skipta athugasemdir íbúa máli við endanlegar ákvarðanir í skipulagsmálum? Eru skipulagsheimildir sem borgin veitir ígildi eignaréttar um ókomna framtíð?

Spurningar á borð við þessar verða reifaðar á fundinum og þess má vænta að umræðurnar veki jafnvel upp fleiri spurningar en svör að fundi loknum.

Auk Hjálmars Sveinssonar formanns ráðsins verða Margrét Harðardóttir arkitekt hjá Studio Granda, Skúli Magnússon héraðsdómari og dósent við lagadeild Háskóla Íslands. og Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs.

Hver á borgina okkar? - Auglýsing.