Hvað höfum við lært? Málþing í Sæmundarskóla

Skóli og frístund

""

Yfirskrift málþings sem haldið var í Sæmundarskóla þriðjudaginn 28. október var Hvað höfum við lært? Átta skólar stóðu að málþinginu en þeir hafa  undanfarin unnið að þróunarverkefnum undir handleiðslu John Morris skólastjóra Ardleigh Green Junior School í London. 

Kennarar og stjórnendur skólanna lýstu í máli og myndum hvað þeir hefðu lært af verkefnunum sem unnin höfðu verið í samstarfi við Ardleigh Green. Þeir töldu tíma hafa verið vel varið í verkefnin og bendir allt til þess að áherslur og kennsluaðferðir sem þróaðar hafa verið í samstarfinu muni halda áfram að þróast og festast í sessi í skólunum átta.

John Morris ávarpaði málþingsgesti og gaf skólunum þrjár stjörnur og eina áskorun. Þeir fengu stjörnu fyrir augljósa umhyggju kennara gagnvart nemendum, aðra fyrir áhuga og hugrekki við að þróa kennsluaðferðir og þriðju fyrir skapandi skólastarf. Óskin sem hann bar fram var sú að kennarar og stjórnendur veiti í ríkari mæli endurgjöf í starfi sínu. Kennarar ættu að gefa nemendum sínum meiri endurgjöf í náminu og stjórnendur kennurum fyrir störf sín. Einnig hvatti John kennara til að hafa meiri væntingar til nemenda, þeir gætu flestir meira en þeir gerðu nú. 

Að málþinginu loknu var gestum boðið að skoða Sæmundarskóla undir leiðsögn skólastjórnenda.



Yfir 250 þátttakendur sátu málþingið. Dagskráin ver tekin upp og verður vistuð á Ardleigh Green vefnum en þar eru vistuð fjölmörg verkefni, sem skólarnir unnu í þróunarverkefninu ásamt myndbandsupptökum frá Ardleigh Green .