Hvað eru unglingar með á heilanum?

Mannlíf Menning og listir

""

Miðvikudaginn 5. nóvember verður Félagsmiðstöðvadagurinn haldinn hátíðlegur í félagsmiðstöðvum fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Markmið dagsins er að vekja athygli á því kraftmikla starfi sem þar fer fram og bjóða gestum og gangandi að kynnast því af eigin raun.

Hvað eru unglingar með á heilanum? er yfirskrift dagsins að þessu sinni.

Félagsmiðstöðvadagurinn er haldinn fyrir tilstilli SAMFÉS, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi, en hann á þó rætur að rekja til Reykjavíkur þar sem hann hefur verið haldinn hátíðlegur frá 2005. Dagskrá félagsmiðstöðvanna verður fjölbreytt í tilefni dagsins og verður bæði hægt að taka þátt í hefðbundnum viðfangsefnum í opnu starfi og fylgjast með skemmtilegum uppákomum.  



Í Félagsmiðstöðinni 100og1 sem starfar í miðborginni verður gestum og gangandi m.a. boðið upp á að reyna sig í svokölluðu „tiedye“, skemmtilegri leið til að lita fatnað, auk þess sem kaffi verður á könnunni. Pylsusala verður í Félagsmiðstöðinni Dregyn í Grafarvogi en þar verður starfsemi félagsmiðstöðvarinnar jafnframt kynnt ásamt mörgu fleiru. Fulltrúar Dregynjar hafa sett saman stutt kynningarmyndband um félagsmiðstöðina í tilefni dagsins sem jafnframt er boðskort til allra sem hafa áhuga á uppbyggilegu frístundastarfi barna og unglinga.  Félagsmiðstöðin 105 býður gestum í hippahorn auk þess sem efnt er til kökukeppni og í Gleðibankanum ætla unglingar að skora á foreldra og aðra fullorðna í borðtennis. Þau standa jafnframt fyrir vöfflusölu en kaffið er í boði hússins. Í Fjörgyn í Grafarvogi verður tónlistin áberandi og verður Skrekks-atriði Foldaskóla sýnt og í Púgyn ætla unglingar í unglingaráði að bjóða upp á leiki og veitingasölu. Félagsmiðstöðin Sigyn tók upp slagorðið „Remember, remember the 5th november“ í tilefni dagsins og býður upp á Skrekks-atriði, hópleiki og veitingar.



Dagskrár og opnunartíma allra félagsmiðstöðvanna í Reykjavík og heimilisföng má finna á Facebook- síðum þeirra sem og heimasíðum þeirra. 



Kíkið við og verið hjartanlega velkomin.

Unglingar og frístundaráðgjafar bíða spenntir eftir að fá ykkur í heimsókn!