Vinnuhópur um framtíðarskipulag í Gufunesi ætlar að kynna svæðið og möguleika þess á Grafarvogsdeginum á laugardag. Fulltrúar hópsins verða í hinni nýju félagsmiðstöð í Spöng kl. 13 – 15. Áhugasamir gestir eru hvattir til að koma með óskir sínar og hugmyndir um nýtingu Geldinganessins, skipulag svæðisins og innviði.
Tillaga um opna hugmyndasamkeppni
Samráð um tækifærin í Gufunesi
- að fara yfir fyrirliggjandi hugmyndir og eftir atvikum kalla eftir nýjum um notkun og/eða uppbyggingu í Gufunesi;
- að setja fram framtíðarsýn fyrir svæðið í heild;
- að meta kosti í uppbyggingu útivistarstarfsemi, s.s. ylstrandar, aðstöðu fyrir vatnasport eða golfvallar;
- að kanna möguleika á hótelrekstri og annarri atvinnustarfsemi á svæðinu;
- að leggja drög að uppbyggingu göngu- og hjólastíga;
- að kanna kosti brúarsmíðar yfir í Viðey;
- að skoða hugsanlega uppbyggingu á gömlu öskuhaugunum og hvað varúðarráðstafana þarf að grípa til á því svæði.
Í skipunarbréfinu er gert ráð fyrir nánu samstarfi við íbúasamtök Grafarvogs og Fjölni. Einnig er gert ráð fyrir samstarfi við hagsmunaaðila á svæðinu. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili vinnu sinni fyrir 1. október 2014.