Hreystibraut við Hagaskóla

Betri hverfi Íþróttir og útivist

""

Nú á dögunum var sett upp hreystibraut við Hagaskóla, en þetta var eitt af þeim verkefnum sem varð fyrir valinu í kosningu í verkefninu "betra hverfi" fyrir árið 2013. Braut þessi er í líkingu við það sem við þekkjum frá Skólahreysti. Krakkarnir sem hafa verið að nota þessa braut eru himinlifandi með þetta framtak og klárt að braut þessi á eftir að auka á fjölbreytni hvað hreyfingu varðar hér í Vesturbænum.