Hressilegt hausthlaup í Langholtsskóla

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""

Krakkar og kennarar í Langholtsskóla hlupu norrænt skólahlaup í morgun og fengu borgarstjóra í lið með sér.

Allir nemendur Langholtsskóla tóku þátt í hlaupinu eða um 600 börn. Hlaupið var í fallegu og köldu haustveðri í Laugardalnum en í norrænu skólahlaupi er hægt að velja á milli þess að hlaupa 2,5 kílómetra, 5, eða 10. 

Eftir skemmtilega upphitun á skólalóðinni var lagt í hann en frábær aðstaða er til hlaupa og útivistar í Laugardalnum sem skartar sínu fegursta í haustlitum um þessar mundir. Margir nemendur og tveir kennarar hlupu 10 kílómetra, en flestir létu 2,5 nægja.  

Eftir þetta hressilega hlaup hurfu nemendur aftur til starfa hressir og kátir eftir útivistina.