Hreinsunardagur hjá Vesturgarði

Umhverfi

""

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar - Vesturgarði létu sig ekki vanta í hreinsunarátakið sem borgin stendur fyrir þessa dagana. Starfsmenn fóru reyndar út í dag föstudaginn 9. maí, en flestir fóru í tiltektina 8. maí. Starfsmenn höfðu gaman af og hér má sjá nokkrar myndir af hressum starfsmönnum Vesturgarðs taka til.

Þjónustumiðstöðin hvetur jafnframt aðra borgarbúa að láta gott af sér leiða um helgina þvi þá hefst almennt hreinsunarátak borgarinnar.