Endurhönnun á Hofsvallagötu milli Hringbrautar og Ægisíðu er í burðarliðnum og var staða breytinga kynnt fyrir umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur í dag, 19. febrúar. Samráð verður áfram haft við íbúa og opinn íbúafundur boðaður fljótlega. Verkfræðistofan EFLA og landslagsarkitektar frá vinnustofunni Landslag verða ráðgjafar við verkið.
Samráðið við íbúa hófst með tímabundinni breytingu á Hofsvallagötu á liðnu ári. Einstakt tækifæri gafst til að kanna viðbrögð meðal vegfarenda og íbúa áður en ráðist yrði í varanlega hönnun sem nú er á frumstigi. Samráðshóp var til að mynda komið á fót eftir íbúafund vegna tímabundnu framkvæmdanna og skilaði hann af sér góðu starfi.
Þegar drög frá hönnuðum liggja fyrir verður boðað til íbúafundar með vinnufundarsniði. Þá verður unnið með niðurstöður úr samráðinu í endanlegri hönnun götunnar og hún verður kynnt á vefsvæði Reykjavíkurborgar, í þjónustumiðstöð Vesturbæjar, sundlaug og í hverfisverslunum. Hægt verður að senda inn athugasemdir við hönnunina í 2 vikur.
Framkvæmdin er liður í því að framfylgja nýju aðalskipulagi Reykjavíkur þar sem að öllum ferðamátum er gefið rými á götum borgarinnar. Hofsvallagata er aðalgata í þessum hverfiskjarna í Vesturbænum en við endurhönnun slíkra gatna eiga þarfir og öryggi hjólandi, gangandi og hreyfihamlaðra ávallt að vera í fyrirrúmi. Markmið breytinganna er m.a. að draga úr hraða bílaumferðar, hávaða og bæta öryggi og loftgæði.
Hofsvallagata er falleg gata fyrir margar sakir en frá efsta punkti hennar er bein sjónlína niður að sjó sem er einstakt fyrir breiðgötu í borgarumhverfi Reykjavíkur. Sérfræðingar borgarinnar hafa skoðað hvað komist fyrir í götuþversniðinu og metið þá þætti sem mikilvægast er að lagfæra og rýnt aðstæður á gatnamótum. Við endurgerð hennar verða bæði reinar fyrir bifreiðar og reiðhjól auk gangstétta og fyrirkomulag bílastæða endurskoðað. Einnig er gert ráð fyrir umferðar- og gangbrautarljósum.
Framkvæmdir munu hefjast á þessu ári og eru 150 milljónir ætlaðar til verksins. Stefnt er að því að hönnunarvinnu ljúki í sumar og framkvæmdum næsta vetur.
Bókanir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs um málið.
Myndin sýnir hugmynd að mögulegu götuþversniði.