Hjóladagur Vesturbæjar

Íþróttir og útivist Samgöngur

""

Hjóladagur Vesturbæjar var haldinn í þriðja sinn laugardaginn 3. maí sl. og eins og sjá má á myndunum höfðu gestir gaman af því sem var í boði, en þrautabrautin er alltaf vinsælust hjá krökkunum. Fullorða fólkið nýtti sér þetta tækifæri og lét kíkja á hjólin sín fyrir sumarið, en nú er átakið „Hjólað í vinnuna“ að hefjast. Lögreglan lét sig ekki vanta, en hún er farin að vera með eftirlit í auknum mæli á reiðhjólum sem er frábær viðbót hjá þeim. En meðfylgjandi myndir segja allt sem segja þarf um hversu gaman var hjá þeim sem mættu.