Hjólað í vinnuna hófst með formlegum hætti í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum í morgun. Það er óhætt að segja að veðrið hafi leikið við hjólreiðamenn á upphafsdegi átaksins.
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, velferðarráðherra (heilbrigðisráðherra), Leifur Bárðarson, frá Embætti landlæknis og Eva Einarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur ávörpuðu gesti áður en þeir héldu út í veðurblíðuna og hjóluðu til vinnu. DR. Bæk var á staðnum, líkt og fyrri ár, með smurolíubrúsann á lofti að lagfærði hjól.
Vistvænar samgöngur eru í hávegum hafðar í nýju aðalskipulagi Reykjavíkur sem samþykkt var í febrúar. Hlutdeild almenningssamganga, gangandi og hjólandi mun vaxa verulega á næstu árum og mun það einnig bæta loftgæði í borginni.
Borgin vinnur samkvæmt hjólreiðaáætlun sem samþykkt var í borgarstjórn árið 2010. Samkvæmt hjólreiðaáætlun skal stefnt að því að stórauka hlutdeild hjólreiða í borginni með því að leggja betri hjólastíga og bæta aðstöðu fyrir hjólreiðafólk. Hönnun hjólaleiða er borin undir Landssamtök hjólreiðamanna til að skoðanir helstu notenda fái notið sín.
Verið er að bæta hjólaleiðir um alla borg. Má þar t.d. nefna brýrnar yfir Elliðaárósa sem stytta leiðir fyrir íbúa í Grafarvogi. Fossvogsstígur fyrir hjólandi tengir Breiðholtið betur við miðborgina. Hjólastígur meðfram göngustíg við Sæbraut er kærkominn vegna mikils fjölda gangandi á göngustígnum – ferðamanna og annarra. Þá er unnið að tvöföldum hjólastíg í Öskjuhlíð að Nauthólsvík.
Úrbætur í grónum hverfum eru m.a. Hofsvallagata sem nú er í hönnun og samráðsferli með íbúum í Vesturbænum. Hverfisgatan sem er langt komin sem borgargata með hjólastíga beggja vegna. Borgartúnið sem hefur fengið andlitslyftingu og mikið bætt aðgengi fyrir bæði gangandi og hjólandi vegfarendur.
Verið er að bæta við hjólastæðum í miðborginni, við Pósthússtræti, Lækjargötu, Ingólfstorg og víðar. Hjólateljarinn við Suðurlandsbraut sýnir aukningu hjólandi vegfarenda í borginni og við sjáum það að sjálfsögðu líka með eigin augum. Mannlífið er meira og ánægjulegt að sjá borgina á iði.