Hiti er málið í Dalskóla

Skóli og frístund

""

Undanfarnar sex vikur hafa öll börnin í Dalskóla verið í smiðju sem ber yfirskriftina Hiti er málið. Sýning á afrakstrinum verður fimmtudaginn 10. apríl. 

Börnin hafa verið í rafmagnsfræði, eðlisfræði og hitaveitupælingum og unnið verkefni eftir aldri, en þau eru á aldrinum 2ja til 12 ára. Samhliða hafa listgreinakennarar unnið með hitann í tónlist og mynd með það að markmiði að í smiðjulok fari fram dagskrá utandyra þar sem allir nemendur, starfsmenn og foreldrar fái menningarlega upplifun af hitanum og forgengileikanum. Þar verður tendraður eldskúlptúr sem börnin hafa hannað, smíðað og vafið og fylgst með umbreytingunni og forgengileikanum. Við þetta tilefni ætla börnin líka að fremja trommugjörning, syngja og hita mjöð á glóðum og steikja viðbit.

Smiðjulokin fara fram næstkomandi fimmtudag á lóðinni fyrir framan skólabyggingarnar að viðstöddum öllum Dalskólabörnum, frá 2ja ára til 12 ára aldurs, foreldrum og starfsfólki skólans. Að lokinni útihátíð fara börnin inn með foreldrum og gestum og upplifa sýninguna Hiti er málið sem sett hefur verið upp í skólanum.