Heiti Potturinn í Breiðholti

""

Hitt Húsið hefur opnað fyrir umsóknir í Heita Pottinn, verkefnasjóð sem hefur það að markmiðum að virkja ungt fólk til uppbyggilegs starfs í nærumhverfi sínu, að efla hverfisvitund og stuðla að jákvæðri ímynd hverfisins.

Umsækjendur verða að vera á aldrinum 16-25 ára og hafa lögheimili í Breiðholti.



Í fyrra fengu margvísleg verkefni styrk úr sjóðnum, meðal annars hélt Grísalappalísa tónleika í Mjóddinni, Swaggerific danshópur kom um æfingaaðstöðu og héldu sýningu í lok árs, BORG raftónleikaröð hafa verið með raftónleika víðs vegar um Breiðholtið, meðal annars í Breiðholtslauginni. Nokkrir drengir tóku sig saman og tóku hjólabraut í gegn, og nú á næstu dögum er fyrirhugað að opna þrískipta ljósmyndasýningu í Gerðubergi, Breiðholtslaug og á götum Breiðholtsins sem heitir Heima og að heiman.

Hægt er að sjá öll verkefnin á www.facebook.com/heitipottur.

Umsóknarfrestur er til 1. mars og er tekið við umsóknum á www.hitthusid.is. Við hvetjum ungt fólk til að kynna sér sjóðinn og leggja inn hugmyndir að skapandi verkefnum í Breiðholti!