„Heimar í heimi“ afhjúpað

Mannlíf Menning og listir

""

Jón Gnarr borgarstjóri afhjúpaði listaverkið „Heimar í heimi“ (World Within Worlds) eftir Sigurð Guðmundsson við Rastargötu við Reykjavíkurhöfn í vikunni. Verkið er gjöf tölvuleikjafyrirtækisins CCP til Reykjavíkurborgar og er virðingarvottur til þeirra milljóna manna um alla heimsbyggðina sem hafa tekið þátt í þróun og uppbyggingu tölvuleikjarins EVE Online í um áratug.

Heimar í heimi er á hafnarkantinum við Rastargötu í Vesturbugt. Þar mun verkið standa a.m.k. til 1. maí 2016 þegar ákvörðun verður tekið með endanlega staðsetningu þess. Verkið er unnið í Kína í granít, stál, steypu og ál og er fimm metra hátt. Nöfn hundruða þúsunda spilara EVE Online eru rituð í álplötur sem þekja grunn verksins.



Mikill fjöldi lagði leið sína í Rastargötu við afhjúpun verksins, en Jón Gnarr borgarstjóri, Sigurður Guðmundsson, listamaður verksins og Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP hjálpuðust að við afhjúpunina. EVE Fanfest hátíð og ráðstefna tölvuleikjaframleiðandans CCP hófst í Reykjavík í gær og stendur yfir í þrjá daga í Hörpu.