Líf og fjör hefur verið á sýningunni Skóla- og frístundaborgin Reykjavík sem nú stendur yfir í Ráðhúsinu. Fjölmargir gestir lögðu leið sína í Ráðhúsið 1. maí og skoðuðu sýninguna. Í dag er heilbrigði og velferð í brennidepli.
Skólahljómsveit Austurbæjar lék fyrir gesti og á sýningunni léku börnin sér og lærðu ýmislegt nýtt efnivið úr skóla- og frístundastarfinu.
Tveir dagar eru eftir af þessar i frábæru sýningu. Í dag föstudag verður megináhersla á lögð á þann grunnþátt menntunar sem heitir Heilbrigði og velferð, en á morgun laugardag verður Jafnrétti og sköpun í brennidepli.
Atriði á sviði í dag 2. maí:
• kl. 13.00 Marimbasveit Háaleitisskóla undir stjórn Ásdísar Gísladóttur tónmenntakennara
• Kl. 13.30 Hreyfifærni leikskólabarna - Börn úr Hagaborg sýna undir stjórn Þóru Sifjar Sigurðardóttur
• kl. 13.40 Söngur leikskólabarna - Börn úr leikskólanum Drafnasteini syngja
• kl. 14.00 „Dans er líka fyrir stráka“ - Nemendur úr Hagaskóla og Seljaskóla sýna undir stjórn Irmu Gunnarsdóttur - Samstarfsverkefni skólanna, Listaháskóla Íslands og Danslistaskóla JSB
• kl. 15.00 Harmonikkukvintett (15:00)- Nemendur úr Tónlistarskóla Eddu Borg spila
• kl. 16.00 Fjölbreytt ördagskrá Suzukitónlistarnemenda - Börn sem stunda nám í píanó- og fiðluleik í Allegro Suzukitónlistarskólanum spila
• kl. 16.30 Nemendur í unglingadeild Söngskólans í Reykjavík syngja
Málstofa um HEILBRIGÐI OG VELFERÐ kl. 15.00 - 16.30:
• Mötuneytisþjónusta SFS, Helga Sigurðardóttir og Herborg Svana Hjelm, skrifstofu skóla- og frístundasviðs
• Vinsamlegt samfélag, Nanna K. Christiansen, skrifstofu skóla- og frístundasviðs
• Forvarnastefna Reykjavíkur, Sigrún Sveinbjörnsdóttir, skrifstofu skóla- og frístundasviðs
• Heilsueflandi skóli,, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Embætti landlæknis