Hátt í eitt hundrað börn og unglingar fengu íslenskuverðlaun unga fólksins

Skóli og frístund

""

Íslenskuverðlaun unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík voru afhent við hátíðlega athöfn í Norðurljósasal Hörpu í dag. 58 börn og unglingar og þrír nemendahópar fengu viðurkenningu.

Meðal verðlaunahafa voru lestrarhestar og tvítyngdir nemendur sem sýnt hafa framfarir í íslenskunámi, ung ljóðskáld, sögusnillingar, bókaormar og góðir upplesarar. 

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setti athöfnina og sagði m.a. að það væri sérlega ánægjulegt að svo mörg börn og ungmenni leggðu rækt við orðin, skáldskapinn, framsögnina og ekki síst samvinnu um tungumálið, því sérhvert tungumál væri samstarf og sameiginlegur auður. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti og verndari verðlaunanna, flutti einnig ávarp við athöfnina og afhenti verðlaunin. Þá var Alexander Þór Gunnarsson nemandi í Rimaskóla með uppistand og barna- og unglingaleikhúsið Borgarbörn flutti söngatriði úr leikritinu Mamma Gjé undir stjórn Erlu Ruthar Harðardóttur.

Íslenskuverðlaunin voru nú veitt í áttunda sinn, í tilefni Dags íslenskrar tungu, sem haldinn er hátíðlegur 16. nóvember á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaununum er ætlað að auka áhuga grunnskólanema í Reykjavík á íslenskri tungu og hvetja þá til framfara í tjáningu og töluðu og rituðu máli. Verðlaunagripinn, Þröstinn góða, sem er hvort tveggja í senn bókahilla og veggskaut, hannaði Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir.

Formaður nefndar um Íslenskuverðlaun unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík er Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi.