Um helgina var haldin vegleg handavinnusýning í félagsmiðstöðinni, Hraunbæ 105. Boðið var upp á sannkallaða veislu fyrir augu og bragðlauka. Í félagsmiðstöðinni í Hraunbæ er margt hagleiksfólk að vinna að hugarefnum sínum og sýningin endurspeglaði hversu frjótt starf iðkendur stunda.
Um helgina var haldin vegleg handavinnusýning í félagsmiðstöðinni, Hraunbæ 105. Boðið var upp á sannkallaða veislu fyrir augu og bragðlauka. Í félagsmiðstöðinni í Hraunbæ er margt hagleiksfólk að vinna að hugarefnum sínum og sýningin endurspeglaði hversu frjótt starf iðkendur stunda. Útskurðarteymið, Listmálararnir og handavinnustúlkurnar sýndu afurðir undanfarinna tveggja ára auk þess sem sýnd voru handbrögð í handavinnu og útskurði báða dagana. Gestir gátu svo notið eðal bakkelsis með kaffinu, sem Soffía sá um að afgreiða í gesti og gangandi. Gróft reiknað fengum við 400 manns í heimsókn um helgina og það verður að teljast afar góð mæting á sýningu, enda var til þess tekið hversu falleg verkin á sýningunni, voru listavel unninn! Sýning sem þessi, verður ekki sett upp án fyrirhafnar en samtakamáttur allra iðkenda í starfseminni komu sýningunni í það glæsilega horf sem gestir nutu. Leiðbeinendurnir Hulda gler, Astrid, Hulda Baldurs, Ásgeir, Þórunn og allir iðkendur eiga heiður skilinn fyrir sýninguna og fyrir tilstillis Siggu í eldhúsinu rann meðlætið ljúft niður með kaffinu. Það er mikil stemmning í félagsmiðstöðinni að Hraunbæ 105, verið velkomin og komið fagnandi!
Kveðja
Trausti Jónsson
Verkefnisstjóri félagsstarfs