Handritin til sýnis á Landnámssýningunni í Aðalstræti

Mannlíf Menning og listir

""

Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um að undirbúa sýningu á handritum úr safni Árnastofnunar á Landnámssýningunni Reykjavík 871±2 í Aðalstræti. Verkefnið er samþykkt af hálfu borgarráðs með fyrirvara um heimild ríkisstjórnar hvað varðar lán á handritum.

Forsvarsmenn Árnastofnunar höfðu frumkvæði að því við menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar að sett yrði af stað könnun á forsendum og fýsileika þess að koma upp handritasýningu í tengslum við Landnámssýninguna Reykjavík 871±2 sem Minjasafn Reykjavíkur rekur. Í samráði við Árnastofnun og verkfræðistofuna Eflu hefur nú farið fram öryggisáhættugreining þar sem skoðaðir hafa verið kostir og gallar þess að sýna valin handrit í Landnámssýningunni. Í meginatriðum er komist að þeirri niðurstöðu að mögulegt sé að sýna handritin að því tilskyldu að bætt verði úr tilteknum öryggisatriðum varðandi ýmsa þætti húsnæðisins, öryggiskerfi og vöktun.



Árnastofnun mun leggja til texta og annað innihald og sýningarhönnuður fenginn til að útfæra sýninguna í Landnámssýningunni. Gert er ráð fyrir að Minjasafn Reykjavíkur beri bæði kostnað og nyti tekna af daglegum rekstri sýningarinnar.



Borgarráð hefur samþykkt tillöguna með fyrirvara um heimild ríkisstjórnar hvað varðar lán á handritum. Árnastofnun kannar nú hvort heimild fáist fyrir þessu samstarfi. Fáist bæði heimild ríkisstjórnar og borgarráðs, og að því gefnu að undirbúningur geti hafist sem fyrst, væri hægt að opna sýningu á handritum úr safni Árnastofnunar í byrjun sumars.