Handbók um kynjaða fjárhags- og starfsáætlun hjá Reykjavíkurborg

Stjórnsýsla Fjármál

""

Reykjavíkurborg hefur nú gefið út í rafrænu formi handbók um kynjaða fjárhags- og starfsáætlun.

Handbókin á að nýtast sem leiðsagnarrit fyrir alla þá sem koma á einn eða annan hátt að kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun hjá Reykjavíkurborg. Í henni er farið skref fyrir skref yfir alla þá þætti sem tengjast innleiðingunni.

Markmiðið er sömuleiðis að gera starfsfólki borgarinnar, pólitískt kjörnum fulltrúum og íbúum betur kleift að öðlast skilning á því hvað kynjuð fjárhags- og starfsáætlun er og hvaða ávinning innleiðingin getur haft í för með sér.

Skoða Handbók um kynjaða fjárhags- og starfsáætlun Reykjavíkurborgar.