Haldið upp á 50 ára afmæli Tækniháskóla Íslands í HR

Menning og listir Mannréttindi

""

Í dag fagna starfsmenn ásamt útskrifuðum og núverandi nemendum Háskólans í Reykjavík því að 50 ár eru liðin frá því að Tækniskóli Íslands, síðar Tækniháskóli Íslands var fyrst settur, en hann var sameinaður Háskólanum í Reykjavík árið 2005.

Öllum fyrrverandi nemendum Háskólans í Reykjavík og Tækniskóla Íslands/Tækniháskóla Íslands var boðið í afmælisfagnað í húsakynnum HR í dag og fór veisla fram í Sólinni. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, bauð gesti velkomna,  Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti hátíðarávarp og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri flutti nemendum og starfsmönnum kveðju frá Reykjavíkurborg.

Við stofnun Tækniskóla Íslands fyrir 50 árum hófst tæknifræðinám á Íslandi og síðar fjölbreyttara tækninám sem áður þurfti að sækja erlendis. Árið 2002 varð Tækniskóli Íslands að Tækniháskóla Íslands og 2005 var skólinn sameinaður Háskólanum í Reykjavík. Við sameininguna var tækni- og verkfræðideild stofnuð, rannsóknir stórefldar og byggt upp öflugt verkfræðinám á grunn og framhaldsstigi. Í dag er deildin sú stærsta á landinu og útskrifar HR tvo þriðju þeirra sem ljúka tækninámi á Íslandi.

Í veislunni var boðið upp á stóra köku áletraða í tilefni afmælisins.

Klukkan 13.30 hófst í stofu stutt málþing um háskólamenntun á Íslandi í nútíð og framtíð, undir yfirskriftinni Háskólinn og framtíðin. Þar tekur til máls Ari Kristinn Jónsson, rektor HR og Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, flytur svo ávarp. Aðalfyrirlesari þingsins er Donald Sadoway, prófessor við MIT og frumkvöðull í þróun kennslu og kennsluhátta. Hann mun flytja fyrirlestur um hvernig háskólinn getur með þekkingarsköpun, þróun nýrra tæknilausna, aðstoð við mótun stjórnsýsluramma og viðskiptaumhverfis stuðlað að sjálfbærara samfélagi. Fyrirlestur hans heitir „Sjálfbær framtíð – hlutverk háskólans“. Fundarstjóri er Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.