Hæfileikakeppnin Vesturbær´s got talens 2014 var haldin í Frostaskjóli í gær. 15 hæfileikarík börn skráðu sig í keppnina. Ágúst Beinteinn Árnason hlaut 1. sætið með frumsömdu rapplagi.
Fjölmargir áhorfendur fylgdust með keppninni foreldrum, starfsfólki og börnum til mikillar ánægju.
Kynnir kvöldsins var Markús Loki Gunnarsson, nemi úr 5. bekk í Melaskóla, sem stóð sig með prýði. Jafnframt stóð dómnefndin sig með stakri prýði, en hún var skipuð Kötlu Sigurðardóttur Snædal úr 7.bekk í Melaskóla, Kjartani Henry Finnbogasyni leikmanni í Meistarflokki KR, Þorbjörgu Roach starfsmanni frístundaheimilisins Skýjaborga og liðsmanni úr hljómsveitinni Retro Stefson og Bjarka Sigurjónssyni, deildarstjóri unglingastarfs í Frostaskjóli.
Keppnin byrjaði kl. 17 með fyrsta atriðinu, frumsömdum dansi, sem skapaði strax létta en fjöruga stemmningu í salnum. Þá voru söngatriði, rappatriði og töfraatriði með skemmtilegu kómísku ívafi sem fylgdu á eftir. Einnig var mjög flott harmonikkuspil frá einum hressum dreng 5.bekk, söngur án undirspils frá hugrakkri stelpu í 7. bekk og söngur með bollatakti.