Leikskólinn Gullborg tók á dögunum við viðurkenningu samtakanna Blátt áfram fyrir frumkvöðlastarf í forvörnum gegn ofbeldi á börnum.
Tilraunaverkefni hófst í Gullborg á árinu 2007 og þróaðist yfir í lifsleikniverkefnið Tilfinningabókin. Í því var unnið að því að móta starfsreglur fyrir starfsmenn ef grunur þeirra vaknaði um ofbeldi eða vanrækslu á börnum. Vakti þetta verkefni mikla athygli.
Í framhaldi af því var ráðist í nýtt þróunarverkefni til tveggja ára í tengslum við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og í samstarfi við Grandaskóla og frístundaheimilið Undraland. Það miðar að því að þróa og útfæra fræðsluefni í forvörnum gegn ofbeldi á börnum fyrir starfsfólk, börn og foreldra barna í leikskóla, grunnskóla og frístund.
Öll þessi þróunarvinna í Gullborg sem nú hefur fengið viðurkenningu hefur ætið tengst vinnu með sjálfsmynd barna. Til hamingju starfsfólk Gullborgar með þessa viðurkenningu.