Nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs voru veitt við hátíðlega athöfn í Fellaskóla mánudaginn 26. maí. 33 nemendur í grunnskólum Reykjavíkur tóku við viðurkenningu fyrir dugnað og elju á hinum ýmsu sviðum skólastarfsins.
Fjölmenni var við athöfnina þar sem nemendur úr Fellaskóla sungu við undirleik Guðna Franzsonar og þverflautuhópur úr Tónskóla Sigursveins lék. Verðlaunahafar tóku við viðurkenningarskjali og Tímakistunni eftir Andra Snæ Magnason sem fékk á dögunum barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir það margslungna ævintýri.
Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs sagði m.a. í ávarpi sínu til verðlaunahafanna og foreldra þeirra að eitt besta veganestið sem nemendur fengju í grunnskólanum væri færni til góðra samskipta, til að leysa ágreining á lausnamiðaðan hátt og vera í samstarfi við fólk með margbreytilegan bakgrunn og skoðanir; "Skólamenning sem einkennist af fjölbreytni og jöfnum tækifærum eru verðmæti í sjálfu sér, stöndum saman að því að hlúa að henni, heimilin og skólarnir og stórfjölskyldan í sameiningu", sagði Oddný.
Nemendur sem tóku við verðlaununum fengu m.a. viðurkenningu fyrir góðan námsárangur, virkni í skólastarfi, frammistöðu í íþróttum, félagsfærni og listsköpun. Markmið verðlaunanna er að hvetja
nemendur til að nýta styrkleika sína og leggja sig enn betur fram í námi, félagsstarfi eða í skapandi starfi.
1. Sudeska Gema Kuasa 10. bekk, Austurbæjarskóla
2. Edda Kristín Óttarsdóttir 10. bekk, Árbæjarskóla
3. Leó Ernir Reynisson 7. KG, Ártúnsskóla
4. Brynhildur Vala Björnsdóttir 7. bekk, Breiðagerðisskóla
5. Starri Snær Valdimarsson 10. bekk, Breiðholtsskóla
6. Gylfi Snær Ingimundarson 5.bekk, Dalskóla
7. Hanesa Ósk Þórsdóttir 10. bekk, Fellaskóla
8. Hans Jón Ívarsson 10. bekk, Foldaskóla
9. Hjalti Sigurgeirsson 10. bekk, Hagaskóla
10. Selma Lind Davíðsdóttir 7. bekk, Hamraskóla
11. Vukasin Krstic 10. bekk, Háaleitisskóla
12. Isabella María Eriksdóttir 7. bekk, Háteigsskóla
13. Arnar Geir Geirsson 10. bekk, Hlíðaskóla
14. Vanisa Lampar 4. bekk, Hólabrekkuskóla
15. Guðmundur Tómas Þorláksson 7. bekk, Húsaskóla
16. Jóel Örn Einarsson 10. bekk, Ingunnarskóla
17. Bjarni Anton Theódórsson 10. bekk, Kelduskóla
18. Nevena Cupovic 10. bekk, Klettaskóla
19. Thelma Ósk Þrastardóttir 10. bekk, Klébergsskóla
20. Hrafnhildur Sigurðardóttir 8. bekk, Landakotsskóla
21. Hugrún Britta Kjartansdóttir 10. bekk, Laugalækjarskóla
22. Silja Mist Sturludóttir 5. bekk, Laugarnesskóla
23. Helga Kristín Sigurðardóttir 7. bekk, Melaskóla
24. Hildur Aradóttir 10. bekk, Norðlingaskóla
25. Steinunn Björg Hauksdóttir 10. bekk, Rimaskóla
26. Daníel Smári Hlynsson 5. bekk, Selásskóla
27. Viktoría Sif Haraldsdóttir 10. bekk, Seljaskóla
28. Thanawin Yodsurang 4. bekk, Skóla Ísaks Jónssonar
29. Sigurður Jökull Ægisson 8. bekk, Sæmundarskóla
30. Samar Uz-Zaman 10. bekk, Tjarnarskóla
31. Kamilla Björg Kjartansdóttir 10. bekk, Vogaskóla
32. Ingólfur Jón Ágúst Óskarsson 10. bekk, Vættaskóla
33. Fannar Freyr Eggertsson 10. bekk, Ölduselskóla