80 myndir bárust í stuttmyndakeppni grunnskólanna í Reykjavík sem haldin var í Bíó Paradís 23. maí. Mikil gróska er í kvikmyndagerð barna og unglinga og var fullt út úr dyrum á hátíðinni.
Mikil eftirvænting ríkti í Bíó Paradís á Kvikmyndahátíðinni TÖKU 2014 þar sem ungir kvikmyndagerðarmenn, leikstjórar og leikarar voru saman komin. Verðlaunamyndir í fjórum flokkum og tveimur aldurshópum voru sýndar og vöktu mikla athygli og ánægju.
Í flokki stuttmynda eldri nema fóru nemendur úr Hólabrekkuskóla með sigur af hólmi með myndina Who knew. Í flokki yngri nemend vann myndin Fallið úr Waldorfsskólanum Sólstöfum.
Heimildamyndin Dagur í lífi Óttars sem nemendur í Réttarholtsskóla gerðu sigraði í flokki heimildamynda eldri nemenda og heimildamynd um bókasafnið í Grandaskóla sigraði í yngri flokkknum.
Þá unnu nemendurí Réttarholtsskóla líka í flokknum tónlistarmyndböndum með myndinni Project P.
Í flokki hreyfimynda fóru nemendurí Laugalækjarskóla með sigur af hólmi í eldri flokki með myndina Leiðin á tindinn, en verðlaun til yngri nemenda fóru til Fossvogsskóla fyrir myndina Hvað lærum við?
Alls bárust 80 myndir í keppnina sem hefur vaxið ár frá ári en Kvikmyndahátíð grunnskólanna er eins og flestum er kunnugt elsta kvikmyndahátíð landsins.