Grafarvogsdagurinn haldinn með pompi og prakt
Grafarvogsdagurinn var haldinn hátíðlegur í 17. sinn síðastliðinn laugardag, 17. maí, en dagurinn var fyrst haldinn haustið 1998. Hátíðarhöldin fóru fram víðsvegar um Grafarvog. Frá upphafi hefur markmið dagsins verið að sameina íbúa hverfisins og skapa þeim tækifæri til að hittast, skemmta sér og öðrum og að koma því mikla og merkilega menningarstarfi sem fram fer í hverfinu á framfæri.
Fullyrða má að markmiði dagsins hafi verið náð með glans sl. laugardag þegar íbúar sameinuðust í miklum hátíðarhöldum. Hátíðarhöldin hófust að venju á pottakaffi þar sem Grafarvogslaug bauð gestum að gæða sér á gómsætu kaffi í heitu pottunum auk þess sem frítt var í laugina meðan á pottakaffi stóð. Grunnskólaboðhlaupið var á sínum stað þar sem Kelduskóli hélt heim með glæsilegan farandbikar. Í framhaldi af hlaupinu tóku fyrirtæki í Spönginni vel á móti íbúum þar sem boðið var upp á fjölbreytta skemmtun við allra hæfi. Íslenska gámafélagið var með opið hús hjá sér þar sem gestum var boðið upp á fjölbreytta skemmtun. Deginum lauk síðan í Egilshöll þar sem vel var tekið á móti gestum og hið fjölbreytta starf sem þar fer fram var kynnt.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá deginum.