Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja grænar áherslur í orkunotkun allra leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs í borginni.
Samþykktin byggir á vinnu starfshóps sem m.a. hafði með höndum að skoða orkunotkun og orkunýtingu í leik- og grunnskólabyggingum og leggja til hugmyndir að bættri nýtingu, hagkvæmni og aukinni meðvitund um orkunotkun.
Hópurinn leggur m.a. til að sett verði viðmið um orkunotkun í forsögn fyrir hönnun skólabygginga, að gert verði átak í úttekt og eftirliti með lagnakerfum skólabygginga, skráningu á orkunotkun og uppfærslu ýmissa gagna um gerð og eiginleika húsnæðis.
Með tillögum sínum vill starfshópurinn hvetja til bættrar umhverfisstjórnunar í leik- og grunnskólum borgarinnar, að stuðlað verði að betri umgengni orkuauðlindirnar og að stigin verði mikilvæg skref í að gera rekstur Reykjavíkurborgar enn umhverfisvænni.
Helena Óladóttir, verkefnisstjóri Náttúruskóla Reykjavíkur, stýrði starfshópnum. Hún segir tillögurnar í takt við viðamikið umhverfisstarf sem fari nú þegar fram á starfsstöðum skóla- og frístundasviðs en jafnframt tímabæra hvatningu um að tekið sé tillit til umhverfisviðmiða sem víðast í rekstri borgarinnar.