Mikið fjör var á götuhátíð Jafningjafræðslunnar 8. júlí þar sem sumri var fagnað með alls kyns leikjum, tónlist, dansi og útimarkaði.
Jafningjafræðsla framhaldskólanna var stofnuð á Íslandi árið 1996 af menntaskólanemum sem studdust við danska fyrirmynd að sambærilegu verkefni. Hugmyndafræðin byggir á því að „ungur fræðir ungan“ og eru fræðarar á aldrinum 17-21 árs. Jafningjafræðslan er rekin af Hinu Húsinu í Reykjavík og felst starfið í því að fræða 10. bekkinga um fíkniefnaforvarnir. Enn fremur er lögð áhersla á að efla sjálfsmynd unga fólksins því sterk sjálfsmynd er besta veganestið sem unglingar fá út í lífið og eykur velgengni og vellíðan.
Jafningafræðslan heldur árlega götuhátíð þar sem sumri er fagnað og ungmennin koma saman og skemmta sér. Mikið fjör var á götuhátíðinni í Hafnarstrætinu þar sem ýmsar hljómsveitir eins og Harmónía sjarmónía, Munstur og Reykjavikurdætur komu fram. Þá var boðið upp á pylsur og sykurfrauð og gestir gátu verslað á útimarkaði, reynt sig í klifri eða fræðst um hin ýmsu málefni á lifandi bókasafni.
Hátíðin er stærsta vímuefnalausa hátíð Reykjavíkurborgar og var Hafnarstræti lokað að hluta á meðan götugleðin varði.