Fundur götustjóra í verkefni um nágrannavörslu í Breiðholti var haldinn síðasta fimmtudag í Þjónustumiðstöð Breiðholts. Ágæt mæting var á fundinn, en ellefu götustjórar mættu. Alls eru 35 götur sem taka þátt í verkefni um nágrannavörslu í Breiðholt. Á fundinum var kynnt tölfræði frá lögreglunni í Reykjavík sem sýnir glöggt að þjófnuðum, m.a. innbrotum í hús, hefur fækkað mikið í Breiðholti undanfarin ár.
Umsjónarmaður verkefnisins, frístundaráðgjafi á Þjónustumiðstöð Breiðholts,hélt stutta kynningu. Megináherslan á fundinum var á umræður um verkefnið. Meðal þess sem bar á góma var gagnkvæmt upplýsingaflæði milli umsjónarmanns verkefnisins og götustjóra sem þarf að vera vel virkt allt árið um kring.
Fundargestir voru almennt sammála um að nágrannavarslan skipti talsverðu máli í þeirra götu, bæði sem forvörn gegn glæpum og sem tilefni til að kynnast nágrönnum sínum og íbúum götunnar betur.