Góðgerðarvika Norðlinga í Holtinu

Skóli og frístund

""

Krakkarnir í Holtinu ætla í þessari viku að láta gott af sér leiða og standa fyrir fjársöfnun til styrktar mæðrastyrksnefnd og minningarsjóði Sissu. 

Í  Góðgerðarviku verður efnt til ýmissa viðburða til að afla fjár, en Minningarsjóður Sissu gegnir þeim tilgangi að styðja við bakið á skapandi verkefnum ungmenna sem eru í meðferð á meðferðarheimilum. Einnig munu krakkarnir styrkja  Mæðrastyrksnefnd.

Á mánudeginum (24.mars) verður dósasöfnun frá 19:30-21:00 og munu krakkarnir ganga í hús og safna dósum. 

Á þriðjudeginum (25.mars) verður hefðbundin dagopnun frá 13:00-16:30. Þá er öllum velkomið að koma með gömul föt, dót eða bækur eða bara eitthvað sem ekki er verið að nota upp í Holt. Unglingarnir munu svo fara með dótið niður í Mæðrastyrksnefnd. Einnig verða dósirnar flokkaðar og farið með þær í endurvinnslu.

Á miðvikudeginum (26.mars) er góðgerðarball fyrir Minni Holtið frá kl. 17:00-18:30 og um kvöldið er góðgerðarbingó frá kl 19:30-22:00. Vinningarnir eru ekki af verri endanum en meðal annars má nefna frítt fyrir tvo í köfun, frímiðar í bíó, keilu, út að borða, Ipod nano og fl. Þetta er tilvalið kvöld til að koma með alla fjölskylduna og spila smá bingó.

Á fimmtudeginum er dagopnun frá 13:00-16:30. Þar verður m.a. farið með safnað dót til Mæðrastyrksnefndar.

Til að ljúka vikunni verður svo Góðgerðarball Holtsins á föstudeginum frá kl 19:30-23:00. Hver unglingur má taka tvo vini með sér á ballið. DJ NOTNA mun þeyta skífum og halda uppi fjöri um kvöldið. Eins verður tilkynnt hversu miklu Holtið hefur safnað í Góðgerðarvikunni.

Útvarpstöðin Holtó verður í gangi frá 15:00-24:00 alla daga í Góðgerðarvikunni. Tíðnin er 103.9.