Góðgerðardagurinn, Gott mál, unglingar fyrir unglinga
Miðvikudaginn 29.október verður góðgerðadagurinn, Gott mál haldinn í Hagaskóla. Þetta er í sjötta sinn sem dagurinn er haldinn en í fyrsta skipti sem hann er haldinn að hausti.
Miðvikudaginn 29.október verður góðgerðadagurinn, Gott mál haldinn í Hagaskóla. Þetta er í sjötta sinn sem dagurinn er haldinn en í fyrsta skipti sem hann er haldinn að hausti. Það verður opið hús í skólanum milli kl 16:00-19:00 þar sem nemendur og starfsfólk taka á móti gestum. Líkt og undanfarin ár verður fjölbreytt dagskrá. Meðal þess sem boðið verður upp á eru skemmtiatriði frá nemendum, hamborgara-, pylsu-, ís- og pítsasala, kaffi og kökur, draugahús, leikir og þrautir, safa- og boostbarir, lukkuhjól, spákona og margt, margt fleira.
Að þessu sinni hafa nemendur kosið að styrkja krabbameinsdeild Landspítalans og neyðaraðstoð við börn á Gasa svæðinu.
Hagaskóli býður alla velkomna í opna húsið.