Góð niðurstaða úr stærðfræðiskimun í 3. bekk

Skóli og frístund

""

Um 94% nemenda í 3. bekk teljast ólíklegir til að þurfa sérstakan stuðning í stærðfræðináminu.

Niðurstöður úr stærðfræðiskimuninni Talnalykli liggja nú fyrir, en hún var lögð fyrir nemendur í 36 reykvískum skólum í nóvember. Markmið skimunarinnar er að finna þá nemendur sem líklegir eru til að lenda í vanda í stærðfræðinámi svo hægt sé bregðast við með einstaklingsáætlun eða sérstökum stuðningi. Um 94% nemenda í 3. bekk teljast ólíklegir til að þurfa sérstakan stuðning í stærðfræðináminu en hlutfall þeirra sem þurfa stuðning er 5,8%.  Þessi niðurstaða, ásamt niðurstöðum Talnalykils 2012, er ein sú besta frá 2003 þegar hún var fyrst lögð fyrir.

Skimunin er þrepaskipt og náðu 75% nemenda settu viðmiði í fyrsta þrepi og teljast því ólíklegir til að þurfa á sérstökum stuðningi að halda. Um 14% nemenda náðu settu viðmiði í öðru þrepi og eru því heldur ekki í áhættuhópi. Um 11% nemenda fóru í gegnum allt prófið en tæp 6% þurfa svo að endingu sérstakan stuðning eins og áður segir. Í 7 skólum töldust engir nemendur þurfa sérstakan stuðning í stærðfræði en algengt hlutfall í þeim skólum þar sem flestir þurfa stuðning var á bilinu 9-18%.