Fjölmenni var á Bláa róló á horni Bræðraborgarstígs og Túngötu í morgunsárið en þá var kveikt á ljósalistaverki sem nefnist Glitrandi draumar. Börn á Drafnasteini sem skreyttu tréð með glitrandi hugmyndum sínum og draumum sungu svo fallegt lag í tilefni dagsins. Viðburðurinn er hluti af Vetrarhátíð 2013.
Á Bláa róló er fallegt tré sem börnin á leikskólanum tóku sig til og skreyttu með geisladiskum sem þau höfðu málað á myndir af hugmyndum sínum og draumum. Búið er að koma fyrir lýsingu við tréð og glitrar á verkin sem hanga í trénu þegar kveikt er á ljósunum og endurvarpar draumunum upp í himininn og dreifir þeim til annarra barna um heim allan. Að lokinni tendrun sungu börnin eitt lag.
Ljósaverkið Glitrandi draumur var meðal hugmynda sem fram komu í íbúakosningunum Betri hverfi 2013. Þess má geta að Blái róló hefur einnig verið tekinn í gegn en íbúar Vesturbæjar kusu það verkefni í íbúakosningunum í fyrra og lauk framkvæmdum í haust.
Vetrarhátíð er í fullum gangi og af nógu er að taka og magnað myrkrið fær að njóta sín í Reykjavík.
Skæruliðarnir í Guerrilla Lighting munu lýsa upp skammdegið með „árásum“ á illa lýst mannvirki í Breiðholti annað kvöld. Skæruliðarnir hafa valið nokkra staði í Efra Breiðholti sem þau munu umbreyta með ljósum. Hver „ljósaárás" stendur aðeins yfir í nokkrar mínútur og því mikilvægt að vera vel vakandi til að missa ekki af sjónarspilinu. Skæruliðarnir leiða áhorfendur á milli staða og bjóða upp á rjúkandi kakó eftir gönguna.
Ljósaverk Vetrarhátíðar lýsa upp fegurð borgarinnar á skemmtilegan máta en verkin eru tendruð frá klukkan sjö til miðnættis öll kvöld til 15. febrúar.
Hér er myndband frá þessum skemmtilega viðburði.