Gleðilega þjóðhátíð

Mannlíf

""

Hátíðardagskrá þjóðhátíðardagsins hófst klukkan 11.10 á Austurvelli. Lagður var blómsveigur að styttu Jóns Sigurðssonar, forsætisráðherra flutti hátíðarræðu og fjallkonan flutti ávarp. 

Fjöldi fólks var samankominn á Austurvell til að fylgjast með dagskránni. Margir notuðu tækifærið og klæddust þjóðbúningum af ýmsum gerðum, peysufötum, upphlutu og faldbúningi. Valgerður G. Guðnadóttir var fjallkonan og var ávarpið eftir Valgeir Guðjónsson tónlistarmann. Að lokinni athöfn á Austurvelli var farið í skrúðgöngu í kirkjugarðinn við Suðurgötu þar sem Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, lagði blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar.

Klukkan 13 fara svo skrúðgöngur af stað frá Hagatorgi niður í Hljómskálagarð og frá Hlemmi niður Laugaveg. Formleg skemmtidagskrá hefst svo klukkan 13 í Hljómskálagarði þar sem boðið verður upp á Skátaland þar sem hægt verður að fara í leiktæki. Tóti trúður kemur í heimsókn og þá verður fimleikasýning frá Ármanni auk fleiri skemmtiatriða. Á Arnarhóli hefst svo fjölskylduskemmtun klukkan 13.30.

Boðið verður upp á sérstaka afmælisveislu í Ráðhúsinu í tilefni af 70 ára afmælis lýðveldisins, listasmiðjur fyrir börn, Guðrún Gunnarsdóttir, Þór Breiðfjörð og Pálmi Sigurhjartarson flytja úrval sönglaga síðustu 70 ára og margt fleira. Í kvöld verður svo Harmónikuball í Ráðhúsi þar sem léttsveit Harmónikufélags Reykjavíkur leikur fyrir dansi

Það er af nógu að taka á þjóðhátíðardagskránni fyrir jafnt unga sem aldna.

Nánari upplýsingar um dagskrá má sjá á www.17juni.is.