Gleðilega Menningarnótt

""

Menningarnótt í Reykjavík hófst formlega í morgun þegar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ræsti 10 kílómetra hlaupið í Lækjargötu. Hún er nú haldin í nítjánda sinn og hefur vaxið í að vera stærsti viðburður sem haldinn er á Íslandi. Yfir 100 þúsund manns hafa tekið þátt í hátíðinni síðustu ár og allt að 600 viðburðir á dagskrá frá morgni til kvölds. Góð stemning hefur verið í miðborginni og veður einstaklega milt og gott.

Dagskrá Menningarnætur stendur til kl. 23.00 í kvöld. Opnunarviðburður Menningarnætur í ár var í Hörpu klukkan 13.00 þegar borgarstjórinn í Reykjavík Dagur B. Eggertsson og Björn Kalsö menntamálaráðherra Færeyja afhjúpuðu innsetningu glerlistamannsins Trónds Paturssonar, Farfuglar. Að lokinni afhjúpuninni var stiginn hringdans eins og Færeyingum er einum lagið.
 
Borgarstjóri og frú buðu gestum og gangandi upp á vöfflukaffi á heimili sínu, og var löng biðröð fyrir framan húsið. Innandyra var líf og fjör, staflar af vöfflum og kaffi í lítravís og nóg handa öllum.
 
Út um allan bæ verða fjölbreyttir viðburðir í boði en í ár verður sérstök áhersla lögð á Hverfisgötuna sem menningarmiðju Menningarnætur 2014 með yfir 50 viðburði í boði.
 
Á heimasíðunni www.menningarnott.is er hægt að skoða viðburði og setja saman sína eigin dagskrá. Ókeypis er á alla viðburði Menningarnætur. 
 
Rétt er að benda á að miðborgin er lokuð fyrir bílaumferð og er í raun ein stór göngugata. Borgarbúum og gestum er bent á að taka strætó í bæinn eða fara á hjóli til að komast sem auðveldast í miðbæinn.
 
Góða skemmtun.