Listahátíðin Djúp og breið verður haldin í kirkjum í Breiðholti dagana 29. mars til 5. apríl. Fjöldi viðburða verður á hátíðinni sem er samstarfsverkefni kirknanna í hverfinu. Meðal þess sem er á dagskránni er ljóðaupplestur skáldana Sjóns, Sigurbjargar Þrastardóttur og Vilborgar Dagbjartsdóttur. Fjölmargir tónleikar verða haldnir - m.a. koma Spilmenn Ríkínís fram í Breiðholtskirkju og magnaðir jazztónleikar verða haldnir í Fella- og Hólakirkju þar sem allir helstu jazzpíanistar landsins leika listir sínar.
Nemar á listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti sýna verk sín á hátíðinni, Möguleikhúsið sýnir Eldklerkinn í Seljakirkju, og Gerðubergskórinn og kórinn Hljómur frá Akranesi halda sameiginlega tónleika. Þá halda barnakórar kirknanna, Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts, nemendur Tónskóla Sigursveins og Tónskóla Eddu Borg tónleika ásamt óvæntum gestum.
Lokatónleikar hátíðarinnar eru stórglæsilegir, en þá flytja Kór Breiðholtskirkju, Kór Seljakirkju, Kór Fella- og Hólakirkju, Kór Kópavogskirkju og Lögreglukórinn í Reykjavík ásamt einsöngvara og kammersveit Requiem eftir breska tónskáldið John Rutter undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur.
Margt fleira verður í boði á hátíðinni. Unnt er að fylgjast með dagskránni á facebooksíðu hátíðarinnar - facebook.com/djupogbreid.