Það verður mikið um dýrðir í miðborg Reykjavíkur á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Skrúðgöngur, tónlist, dans, söngur og þrautir, allir ættu að geta skemmt sér vel í miðborginni.
Hefðbundin morgundagskrá verður á Austurvelli og hefst dagskráin með samhljómi kirkjuklukkna í Reykjavík. Fjallkonan fer með ljóð, í fyrra var Selma Björnsdóttir fjallkona sem flutti ljóð eftir Ingunni Snædal. Í ár hefur Valgeir Guðjónsson verið fenginn til að semja ávarp fjallkonunnar en hver hún verður er leyndarmál.
Eftir hádegi fara skrúðgöngur af stað og enda niður í miðbæ þar sem barna- og fjölskylduskemmtanir fara fram. Leiktæki og íþróttasýningar verða í Hljómskálagarðinum og ýmsar sýningar og götuuppákomur verða víðsvegar um miðbæinn. Um kvöldið verða tónleikar og dansleikir.